Með innskráningu og notkun minni á vef Teya staðfesti ég að hafa kynnt mér neðangreinda skilmála og samþykki þá. Teya mun ekki deila skráðu netfangi með þriðja aðila.
Notanda er eingöngu heimilt að nota upplýsingar í eigin þágu og skal hafa samband við Teya án tafar komist hann yfir upplýsingar sem hann telur sig ekki eiga að hafa aðgang að. Óheimilt er og ólöglegt að miðla slíkum upplýsingum til þriðja aðila eða birta þær opinberlega.
Teya áskilur sér rétt til þess að skrá alla notkun og aðgerðir á vef Teya. Aðili sem skráður er fyrir aðgangi ber ábyrgð á notkun.
Notanda er óheimilt að gera vef Teya eða efni hans að hluta af öðrum vef án fyrirfram skriflegs leyfis frá Teya.
Teya áskilur sér rétt til þess að loka aðgangi án fyrirvara ef grunur vaknar um tilraun til misnotkunar eða notandi vanefnir skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum að öðru leyti.
Tilraun til misnotkunar verður kærð til lögreglu. Með tilraun til misnotkunar er, til dæmis en ekki takmarkað við, átt við veikleikaleit eða tilraun til þess að komast yfir aðgang annarra með því að fara framhjá viðmóti svo sem eiga við breytur, slóðir eða önnur gildi.
Allar upplýsingar á síðunni eru birtar án skuldbindingar og með fyrirvara um innsláttarvillur. Teya verður ekki gert ábyrg vegna upplýsinga sem ekki eru aðgengilegar um tíma.
Teya vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi löggjöf um persónuvernd, sjá Persónuverndarstefnu Teya.